42 ára smiður

„Ég hafði um langt árabil forðast gamlar skuldir sem mér höfðu fylgt frá rekstri er ég hafði með höndum. Reglulega komu upp mál sem þessum skuldum tengdust og voru mér nærri óbærileg. Ég tók af skarið og fékk liðsinni starfsfólks Kredit ehf. við að semja um öll mín mál. Í dag hef ég gengið frá öllum mínum málum og get um frjálst höfuð strokið. Niðurstaðan er ótvíræð; ég er afskapleg ánægður með þjónustu Kredit ehf. og mæli með þeim við aðra sem eru í svipaðri stöðu og ég var í áður fyrr.“

38 ára snyrtifræðingur

„Ég gekk í ábyrgð fyrir vinafólk mitt fyrir um fjórum árum síðan. Til að gera langa sögu stutta þá féll lánið á mig og upphæðin var slík að mér var ókleift að standa skil á minni ábyrgð. Ég leitaði til Kredit ehf eftir aðstoð og þar stóð ekki á viðbrögðum. Innan skamms tíma höfðu þeir náð samningum við bankann um endurgreiðslu og spöruðu mér stórfé. Ég losnaði af vanskilaskrá og hef getað haldið mínum viðskiptum við banka í lagi síðan. Takk fyrir frábæra þjónustu.“