Framleiðslufyrirtæki

„Rekstur okkar var komin á heljarþröm og við áttum ekki margra kosta völ. Annað hvort var að freista þess að ná samningum við okkar birgja eða fara með reksturinn í gjaldþrot. Við tókum þann kost að fara í frjálsa nauðasamninga. Starfsfólk Kredit sá um alla samninga fyrir okkar hönd og stóð sig með prýði. Við náðum samningum við alla okkar lánadrottna og reksturinn gengur með ágætum í dag.“

Iðnaðarfyrirtæki

„Um langt skeið hafði rekstur fyrirtækisins gengið afskaplega brösuglega. Þegar við leituðum til starfsfólksKredit ehf. var erindið að biðja um aðstoð við að fara fram á gjaldþrotaskipti á fyrirtækinu. Þeir sáu hinsvegarmöguleika á að snúa rekstri fyrirtækisins til betri vegar. Til allrar hamingju tókst það með ágætum. Í dag búum við að blómlegum rekstri og getum fagnað því að hafa ekki þurft að láta ábyrgðir falla á vini og vandamenn.“